Stjórnarkosningar 2012

Niðurstaða úr stjórnarkosningum 2012

Stallari: Helgi Ármannsson
Varastallari: Ástrún Sæland
Gjaldkeri: Halldóra Þórdís Skúladóttir
Ritnefndarformaður: Þorkell Máni Þorkelsson
Tómstundaformaður: Elvar Orri Jóhannsson
Vef- og markaðsfulltrúi: Helgi Jónsson
Íþróttaformenn: Anton Kári Kárason og Hreinn Heiðar Jóhannsson
Skólaráðsfulltrúar: Hafdís Ellertsdóttir og Kristín Eva Einarsdóttir
Skemmtinefndarformenn: Marta S. Alexdóttir og Vala Rún Valtýsdóttir
 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Sælir Sunnlendingar

Árið er horfið í aldana skaut og aldrei kemur það til baka. Við ML-ingar kveðjum því sælar minningar og góðar samverustundir ársins 2011, um leið og við látum okkur hlakka til allra góðra stunda sem við munum eiga á þessu nýja ári.
Nemendur og kennarar eru þreyttir í skólanum þessa dagana. Með stýrur í augunum og ennþá útbelgdir eftir jólasteikina. Þó mun það líkast til líða fljótt af. Flestir strengdu áramótaheit sem tengjast annaðhvort námi eða líkamsrækt, nema hvort tveggja sé. Er því ekki við öðru að búast en að allir verði komnir aftur í gamla námsfílinginn eftir stutta stund. Enda er nóg framundan í Menntaskólanum á næstunni. Akureyrarferð, stjórnarskiptaball, Morfís-keppni, knattspyrnumót og ótal margt fleira.

Ljósm. | Þorgeir Sigurðsson

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Jólabingó!

Mímir ætlar að halda jólabingó næstkomandi þriðjudag (22.11.2011), þar sem glæsilegir vinningar verða í boði, spjaldið kostar 1000kr. grænt- jafnt sem brúntspjald.

Bingóið byrjar kl. 20:00 til ca. 21:30 í skóla húsi ML

Allir velkomnir!

Jólabingó Mímis á facebook

 

 

 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Tíðindapistill

Stelpumót í bandý

Það sýndi sig svo sannarlega síðastliðinn fimmtudag, hvaða bekkur í skólanum er mestur og bestur í knattleikjum. Því hinar óumdeilanlegu íþróttadísir skólans í 3.bekk héldu áfram sigurgöngu sinni, að þessu sinni í bandýmóti stelpna.Þær báru höfuð og herðar yfir hina bekk-ina, en til að mynda skoraði markadrottningin, Ólöf Ósk Birgisdóttir úr 3. bekk,  11 mörk og bekkjarfélagi hennar var næst markahæst með 4 mörk, hún Lovísa Einarsdóttir. Þar á eftir kom fjórðabekkjardaman Fríða Björg Þor-björnsdóttir með 3 mörk.Það var því 3. bekkur í fyrsta sæti. Annar bekkur vermdi annað sætið, eftir nauman sigur á 4. Bekk sem lenti í þriðja sæti. Enn og aftur lentu svo nýnemastelpurnar í neðsta sæti, þær eru þó yngstar og hafa nógan tíma til þess að bæta sig og læra af mistökum sínum.

 

Upphitunarmót fyrir Morfís

Þar sem að brátt styttist í að ML-ingar taki þátt í fyrsta skipti í MORFÍs er upp-hitunartímabilið í fullum gangi þessa dagana. Síðastliðinn þriðjudag voru loksins valdir þátttakendur ML í hina miklu umræðukeppni.Var þar líklegustu ræðumönnum skipt í 2 lið, úthlutað málefninu „Ætti að kenna trúarbragðafræði í skólum“ og svo haldin keppni milli nemenda. Hatrömm barátta sem líktist að öllu leyti reglulegri MORFÍs keppni í þeim tilgangi að loksins geta útkljáð hverjir fái að halda á lofti heiðri skólans með hnyttni, mælsku og líkamsbeitingu sinni.Ræðumaður kvöldsins, Guðmundur Snæbjörnsson, komst sjálfkrafa í liðið en liðsaðild og litríkur sleikipinni voru verðlaun kvöldsins. Hinir meðlimir liðsins, voru svo valdir af keppendum og dómurum að keppni lokinni. Það urðu, að atkvæðatalningu lokinni hinir málfæru og málglöðu Elvar Orri Jóhannsson og Helgi Jónsson sem hlotnaðist sá heiður.

Ræðumaður kvöldsins, Guðmundur Snæbjörnsson

Kaffihúsakvöld 4. bekkjar

Það var ekki skortur á kaffi, kleinum og kökum í Menntaskólanum að Laugarvatni um daginn.  Stuttmynd, leikþáttur og söngsenur, hið eina og sanna Kaffi-húsakvöld 4. Bekkjar.Fyrst á svið voru þau Jósúa Theodórsson og Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir er sungu saman í dúett lagið „Blítt og létt“. Það þótti með frábærari sviðsframkomum sem höfðu sést lengi í kaffihúsakvölds-söngvum.Svo kom stuttur leikþáttur byggður á kvikmyndinni „Herberginu“ eftir Tommy Wiseau. Þar sem ýmsir leikarar og spunameistarar úr skólanum, sýndu takta sína og brilleruðu. Það þótti frábær skemmtun að horfa á íslenskun þessa mikla meist-araverks heimskvikmyndana.Svo að lokum var frumsýnd ný stuttmynd eftir nemendur skólans. Var það stuttmynd eftir Jóhönnu Ýr Bjarnadóttur, sem ber þann fína titil „Veldu þér réttan lífsförunaut“. Þar sem fylgst var stuttlega með lífi tveggja ungra para, og þá leið sem þau velja sér í gegnum lífið.

 

Þetta var það helsta sem skeð hefur í ML upp á síðkastið. Margt skemmtilegt er þó á döfinni, sem hægt verður að lesa um í næsta pistli.

Góðar Stundir.

Posted in Uncategorized | 1 Comment

Tíðindapistill

Sælir Sunnlendingar, margt hefur drifið á fjöru Menntskælinga frá síðasta pistli, við skulum aðeins líta yfir það helsta.

Fjallferð

Ein af heldri hefðum ML-inga er hinn árlega fjallferð, þar sem öllu skólastarfi er sleppt einn dag og þess í stað fara flestir starfsmenn og allir nemendur saman í fjallferð. Ávallt er verið að finna ný fjöll til að klýfa og enginn nemandi menntaskólans gengur sama fjallið tvisvar þau fjögur ár sem hann sinnir námi við skólann.

Þriðjudaginn 11. október var þessi gleðiganga haldin. Þá gengu menntskælingar hið sögufræga fjall er gnæfir yfir Fljótshlíðina og Landeyjarnar, Þríhyrning. Forðum daga leyndust brennumenn við hálsa fjallsins, en í blíðyndisveðrinu við fjallsræturnar þennan morguninn voru einungis rútur stútfullar af menntaskólanemendum.

Nemendum sem hlupu á nánast engum tíma upp þessa 678 metra. Fremstur þar í flokki var Magnús B. Snæbjörnsson, sem ætlaði að státa sig af því að vera fyrsti ML-ingurinn að komast á toppinn. Hann náði því þó ekki, þrátt fyrir að ná þangað fyrstur af nemendum. Því hún Connie Marie-Cuesta þýskukennari hafði komið á einkabíl á undan rútunum trítlað upp fjallið í mestu makindum og þar með orðið fyrst ML-inga á toppinn. Hún lét það þó ekki nægja og naut útsýnisins nógu lengi til þess að verða síðust aftur niður.

Tískusýning

Föt eru mikil nauðsyn. Án þeirra væru allir naktir og það er afar kalt að vera alltaf nakinn á Íslandi. Því er það mikilvægt fyrir nemendafélagið að stuðla að því að allir ML-ingar eigi nóg af fötum. Til þess að gera það sem best hefur nemendafélagið síðastliðin ár verið að selja ML-föt. Flott föt frá flottum útibúum víðsvegar um landið, sérmerkt Menntaskólanum að Laugarvatni.

Til þess að auglýsa þessi föt sem best var haldin fatasýning fimmtudaginn 13. október. Þá sprönguðu fjallmyndarlegir meðlimir stjórnar Mímis fyrir utan matsalinn, klæddir margskonar flottum fatnaði; jökkum, peysum, buxum, bolum, strengjum og hárböndum. Allt til sölu á afar hagstæðu verði. Á meðan horfðu allir ML-ingar og dáðust að.

Vikuna eftir gengu svo háttvirtir skólaráðsfulltrúar um vistarverur nemenda og seldu fatnaðinn. Allir mátuðu nokkrar flíkur, tóku upp veskið og renndu kortinu eftir posanum. Sátt og sæl með afar góðan díl.

Bandýmót.

Dagana 17. og 20. október var haldið hið árlega bekkjarmót í bandý. Þar sem að allir fjórir bekkir ML öttu kappu og sýndu listir sínar með kylfuna sér við hönd.

Það voru þó tveir bekkir sem án efa stóðu uppúr, aldursforsetarnir í þriðja og fjórða bekk. En þótt ótrúlegt megi virðast þá vann t.a.m. þriðji bekkur annan bekk, með fjórtán mörkum á móti engu og fyrsta bekk með þremur gegn engu. Fjórði bekkur vann svo fyrsta bekk með fjórum mörkum gegn engu og annan bekk átta mörkum gegn einu.

Í baráttunni um þriðja sætið vann síðan 2. bekkur fyrsta bekk með fjórum mörkum á móti einu. En þá var síðasti leikur mótsins eftir, sá leikur sem réði í raun úrslitum mótsins, þegar að þriðji og fjórði bekkur kepptust um efsta sætið.

Leikurinn var æsispennandi. Það skoraði hvorugur bekkurinn í fyrri hálfleik, en þegar það fór að líða á síðari hluta seinni hálfleiks þá kom Anton Kárason eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom þriðja bekk yfir. Eitthvað hefur það kveikt í 4. bekkjarliðinu því stuttu seinna skorðu þeir tvö mörk alveg undir lok leiksins, en þar voru þeir Þráinn Pálsson og Bergþór Ingi Sigurðsson að verki. Fjórði bekkur vann leikinn 2-1, og þar með unnu þeir einnig mótið.

Sigurröðin var því í aldursröð. Þeir elstu urðu sigurvegarar og þeir yngstu töpuðu. Enda ekki við öðru að búast, menn þroskast í gegnum skólaárin og bæta sig sífellt. Markakóngur mótsins var Bergþór Ingi Sigurðsson, sem skoraði gífurlegan fjölda marka og átti stóran þátt í sigri 4. bekkjar.

 

Þetta var það helsta sem skeð hefur í ML upp á síðkastið. Margt skemmtilegt er þó á döfinni, sem hægt verður að lesa um í næsta pistli.

Góðar stundir.

 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Skólasetning framundan.

Mánudaginn 22. ágúst munu busagreyin (og sumir af forráðamönnum þeirra) í fysta sinn skoða með sínum eigin augum undur Menntaskólans að Laugarvatni. Ganga um anddyrið, rekast svo á fjallmyndarlegan húsvörð sem afhendir þeim herbergislykla og bendir þeim á Kösina. Stuttu seinna munu busarnir kveðja mömmu og pabba (sem fara að funda með skólameistara) og heilsa stjórn Mímis. Stjórnarmeðlimir munu svo sína nýnemunum helstu kennimerki skólans, undurfagra náttúru Laugarvatns og jafnvel biðja útvalda nemendur um að halda á húsgögnum.

Þriðjudaginn 23. ágúst munu busarnir hlýða á marga fyrirlestra um námið, lífið og tilveruna. Þeir munu ferðast um staðinn og byrja að mynda vináttubönd sem seint munu slitna. Það er að segja til ca. klukkan þrjú. Því þá munu eldri nemendur skólans fara að streyma í skólann. Þaðan af mun ekki einn einasti nýnemi geta farið að sofa óhultur, allavega það sem eftir er vikunnar.

Menntaskólinn að Laugarvatni verður svo settur kl. 8:15, miðvikudaginn 24. ágúst. Að lokinni ræðu Skólmeistara. Mun svo kennsla hefjast samkvæmt stundarskrá.

Að lokum vill nemendafélagið benda nemendum á bókalista þessa árs, en það hefur komið fyrir að nemendur gleymi að fjárfesta í bókum..

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Ný heimasíða!

Heimasíða Mímis er loksins komin upp á ný. Fallegri og stílhreinni enn nokkru sinni fyrr!

Nú á næstu vikum munu fara að detta inn ljósmyndir, myndbönd, pistlar, og mikið meira af skemmtilegu stöffi. Því er tilvalið á meðan síðan er enn í smíðum að gera hana að heimasíðunni þinni. Þannig getur þú fylgst með alveg frá byrjun!

Posted in Uncategorized | 1 Comment